Heimsókn í Golfklúbbinn Odd

fimmtudagur, 13. september 2018 07:45-08:45, Urriðavöllur

Næsta fimmtudag 13. september verður morgunheimsókn í golfklúbbinn Odd kl 8:00. Formaður klúbbsins, Elín Hrönn Ólafsdóttir og Þorvaldur Þorsteinsson framkvæmdastjóri munu taka á móti okkur, kynna völlinn, sögu hans starfsemi og fleira. Fyrir okkur sem vitum lítið um golf þá fylgir hér með leiðarvísir á þennan svaka flotta völl. 
Hlökkum til að sjá ykkur. Þyri, Guðmundur, Sigurjóna, Helga, Knútur og Páll