Jólafundur

fimmtudagur, 13. desember 2018 19:00-22:00, Golfskáli GKG Vífilsstaðavegi 210 Garðabæ
Þetta verður skemmtilegt kvöld sem hefst kl. 19  í GKG. Dagskráin tekur mið af því að við ætlum, allt í senn, að kynnast betur hvert öðru í gegnum m.a. samkvæmisleiki, gæða okkur á dýrindis jólalegum 10 rétta smáréttaseðli, auk þess að fá til okkar Hollywood stjörnu, sem ætlar að leiða okkur í sannleikann um það að húmor og hamingja er dauðans alvara.