Friðrik Jónsson verður aðalfyrirlesari fundarins. Friðrik er formaður Bandalags háskólamanna – BHM – og var kjörinn til þess og tók
við því hlutverki í lok maí 2021. Áður gengdi hann starfi forstöðumanns GRÓ,
þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, frá október 2020. Frá nóvember 2019 gegndi Friðrik
stöðu fulltrúa Íslands í embættismannanefnd Norðurskautsráðsins (Senior Arctic Official) þar
til formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu lauk í lok maí 2021.
Áður gegndi hann til skamms tíma stöðu deildarstjóra úttekta og eftirlits á
þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Þar á undan var hann fulltrúi Íslands í
hermálanefnd Atlantshafsbandalagsins frá 2014-2019, þar af síðasta árið sem forseti (e.
Dean) nefndarinnar, fyrstur borgaralegra fulltrúa til að bera þann titil. Frá 2011 til 2015
starfaði Friðrik sem ráðgjafi aðalfulltrúa Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í stjórn
Alþjóðabankans í Washington DC. Sumarið 2009 fór hann til starfa í Afganistan, fyrst hjá
alþjóðaliðinu í Afganistan (ISAF) í 12 mánuði sem aðstoðarforstöðumaður þróunarmála hjá
sérstakri stöðugleika-deild. Í framhaldi af því gengdi hann stöðu samræmingaraðila fyrir
þróunarmál hjá sendisveit Sameinuðu þjóðanna í Afganistan (UNAMA). Friðrik hóf feril sinn
hjá íslensku utanríkisþjónustunni í janúar 1996 og hefur starfað á alþjóða-, varnarmála-,
viðskipta-, og þróunarmálaskrifstofum ráðuneytisins. Fyrsta skipun hans erlendis var við
sendiráð Íslands í Bandaríkjunum árið 1998 og gengdi hann stöðu fyrsta sendiráðsritara og
varnarmálafulltrúa. Frá 2002 til 2006 starfaði Friðrik sem staðgengill sendiherra við sendiráð
Íslands í Kaupmannahöfn.
Friðrik er með MA gráðu í alþjóðasamskiptum og herkænskufræðum auk MBA í
alþjóðaviðskiptum og BA gráðu í alþjóða- og ríkjasamskiptum.
Einar Bárðarson verður með 3ja mín. erindið.
Fundurinn er í umsjón stjórnar.
