Fundarhöldum frestað

sunnudagur, 15. mars 2020

Guðmundur Þ. Egilsson

Kæru félagar ... Við erum þessa dagana að upplifa fordæmalausa tíma og því hefur stjórn klúbbsins ákveðið að sýna ábyrgð og fresta hefðbundnum fundarhöldum á meðan samkomubann stjórnvalda stendur yfir. Bakland okkar, þ.e. Rótarý á Íslandi og Rotary International styður þessa ákvörðun. Til að viðhalda okkar góða félagsskap og hressa upp á andann þá hvetjum við ykkur til að vera virk á FB-síðunni okkar og pósta t.d. athyglisverðum og/eða skemmtilegum uppákomum sem við lendum í eða rekumst á í amstri dagsins.  Við horfum björtum augum til framtíðar og vonumst til að þessi krísa gangi yfir sem allra fyrst, okkur öllum til heilla. Bestu kveðjur,
Fyrir hönd stjórnar Guðmumdur Þór Egilsson, klúbbforseti