Rótarýklúbburinn Hof Garðabæ afhenti Sjálandskóla í Garðabæ styrk til kaupa á sérhæfðum hjólastól fyrir nemendur skólans. Styrkurinn er fjármagnaður frá klúbbfélögum og úr Verkefnasjóði Rótarý Ísland.
Klúbburinn styrkir árlega hin ýmsu málefni í samfélaginu eftir þörfum hverju sinni. Það gleður okkur í klúbbnum að geta orðið að liði með styrk þessum sem kemur sér vel í daglegu starfi skólans.
Í Sjálandsskóla er löng hefð fyrir fjölbreyttu útinámi og því að nemendur í 1.-7. bekk fara í lengri og styttri ferðir því tengdu, ýmist fótgangandi, á hjólum eða í strætó. Á hverju ári fara allir árgangar í fjallgöngur að vori. Hippocampe stóllinn hefur lengi verið á óskalistanum hjá starfsfólki vegna þess að hann gerir öllum nemendum kleift að taka þátt í þeirri einstöku upplifun að fara með bekkjarfélögum sínum á fjöll og stunda útivist.
Stóllinn Vipamat- Hippocampe er hjólastóll sem er þeim frábæru eiginleikum gæddur að hægt er að keyra hann á vegum og slóðum þar sem aðgengi annarra hjólastóla er ekki möguleiki. Stóllinn er framleiddur í Frakklandi og mætir þörfum nemenda sem þurfa stuðning við göngu á lengri og flóknari leiðum. Stóllinn er léttur og auðveldur í notkun, þægilegur fyrir þann sem nýtir hann og einnig léttur fyrir þann sem ýtir honum. Starfsfólk Sjálandsskóla þakkar Rótarýklúbbnum í Garðabæ fyrir ómældan stuðning við kaup á þessum fararskjóta sem auðveldar allar ferðir nemenda.
Á ljósmyndinni eru frá Sjálandsskóla Sesselja
Þóra Gunnarsdóttir skólastjóri, Ósk Auðunsdóttir aðstoðarskólastjóri og
Hrafnhildur Sigurðardóttir verkefnastjóri ásamt Birni Sveinssyni forseta og Guðmundu Dagmar
Sigurðardóttur fráfarandi forseta Rótarýklúbbsins.